Hvolparnir hafa braggast ótrúlega vel á síðustu dögum. Þeir fóru í örmerkingu, bólusetningu og heilbrigðisskoðun á Dýraspítalann i Garðabæ fyrir helgi. Fengu allir toppeinkunn og kipptu sér lítið upp við sprauturnar. Eigum nú aðeins þessa gullfallegu og fjörugu svörtu tík handa góðu heimili. Áhugasamir hafi samband í síma 659-0000.
Blissful Birta gerði góða lukku á hundasýningu HRFÍ í dag. Var í fyrsta sæti í ungliðaflokki með excellent og meistaraefni!
Umsögn dómara Liliane de Ridder-Onghena frá Belgíu: Scissor bite, very nice head. good earset. nice dark eyes, good pigment, nice reach of neck. Good front & lay of shoulder. Nice cat feet. Good topline, well placed hindquarters. Give her time to develop further and she will be a very nice bitch!
Gotsystkin hennar náðu einnig fínum árangri;
St. Hunderups Cheerful Caesar 3. sæti í ungliðaflokki
Hvolparnir urðu sex vikna í dag og fengu að fara út að leika í góða veðrinu. Flestir hafa fundið góð framtíðarheimili og fara þangað eftir aðeins tvær vikur. Nokkrir eru þó enn í leit að nýjum húsbændum. Áhugasamir setji sig í samband við okkur.
Hvolparnir eru búnir að sprengja utan af sér gotkassann og hafa nú lagt undir sig bílskúrinn. Allir komnir með ólar í lit þannig að auðveldara sé að þekkja þá í sundur. Þeir eru komnir á fast fóður með móðurmjólkinni og braggast ótrúlega vel. Eigum enn eftir eina tík ólofaða og tvo rakka.
Tinna gaut sex heilbrigðum hvolpum: einum gulum og einum svörtum rakka; tveimur gulum og tveimur svörtum tíkum. Fyrstu fjórir hvolparnir fæddust í gær en tveimur var bjargað með keisaraskurði í dag. Tík og hvolpum heilsast vel en Tinna orðinn ansi þreytt eftir langa törn.
Við pöruðum Tinnu (Chuna) við Leiru Rösk í febrúar og eigum von á gulum og svörtum hvolpum í apríl. Þetta er annað gotið okkar og m.v. árangurinn sem að hvolpar úr fyrra goti hafa skilað á sýningum erum við að vonum spennt.
Röskur er íslenskur sýningarmeistari (ISSHCH) og annar stigahæsti hundur retrieverdeildar á árinu 2011. Hann hefur hlotið ótal viðurkenningar þ.m.t. 11 meistaraefni (CK), 3 íslensk meistarastig (CAC), 1 alþjóðlegt meistarastig (CACIB) og 1 var alþjóðlegt meistarastig (res-CACIB). Hann hefur tvisvar verið valinn besti hundur tegundar (BOB) og þrisvar sinnum orðið besti hundur af gagnstæðu kyni (BOS). Hvolpur undan Röski varð nýlega þriðji besti hvolpur sýningar í Svíþjóð.
Þrír ungliðar úr fyrsta gotinu okkar (sem fagnar eins árs afmæli á þriðjudaginn) tóku þátt í alþjóðlegu hundasýningunni í dag. Allir þrír fengu einkunnina Excellent og tvær tíkur fengu meistaraefni; Sunny Salka: Excellent með meistaraefni. #1 í ungliðaflokki og #3 besta tík. Blissful Birta: Excellent með meistaraefni. #2 í ungliðaflokki. Cheerful Caesar: Excellent
Blissful Birta og Sunny Salka kepptu í flokki 6-9 mánaða á alþjóðlegu hundasýningunni í dag. Báðar fengu þær heiðursverðlaun og mikið lof frá dómaranum, Saija Juutilainen frá Finnlandi. Salka varð hlutskörpust í flokkinum og Birta varð önnur.
Salka fór því áfram í úrslit sýningar og hafnaði í þriðja sæti fyrir besta hvolp á aldrinum 6-9 mánaða. Við óskum Þórdísi Skúladóttur, eiganda Sölku innilega til hamingjum með árangurinn.
Fjórir hvolpar úr Happy Synonym gotinu hittust í Urriðaholtinu í dag og gerðu sér glaðan dag í leðjunni á meðan eigendur báru saman bækur sínar. Fleiri myndir eru á Facebook síðunni okkar.